Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir næstum 4 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.
Skráning í Vinnuskóla Vesturbyggðar
Vinnuskólinn hefst bæði á Patreksfirði og Bíldudal þann 9. júní 2020. Skráningar er nú hafin og stendur til 2. júní n.k.
Skrifað: 7. maí 2020
Skráning fer fram hér á heimsíðunni með útfyllingu á eyðublaði hér fyrir neðan. Einnig er hægt að nálgast skráningarblöð til útfyllingar í Ráðhúsi Vesturbyggðar. Þeim er þá skilað til íþrótta- og tómstundafulltrúa. Afhenda þarf útfyllt skráningareyðublað undirritað af foreldri, annars telst skráningin ekki gild.
Vinnuréttur er mismikill eftir aldurshópum, en hann er sem hér segir.
- 10. bekkur í 8 vikur í 7 klst á dag
- 9. bekkur í 8 vikur í 7 klst á dag
- 8. bekkur í 6 vikur í 4 klst á dag
- 7. bekkur í 4 vikur í 4 klst á dag