Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir næstum 2 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Skrifað undir samning um íbúða­fram­kvæmdir á Bíldudal

Undir­rit­aður hefur verið samn­ingur um nýbygg­ingu tíu íbúða á Bíldudal en það eru fisk­eld­is­fyr­ir­tækið Arnarlax og sveit­ar­fé­lagið Vest­ur­byggð sem standa að verk­efninu í samstarfi við Hrafns­hóla. Arnarlax á hluta íbúð­anna og Vest­ur­byggð hefur veitt stofn­framlög til bygg­ingar hluta íbúð­anna, en aðrar verða seldar á opnum markaði og verða þær þá fyrstu nýbygg­ing­arnar sem fara í almenna sölu á Bíldudal í þrjá áratugi.

 


Skrifað: 6. maí 2022

Fréttir

Næg atvinnutækifæri eru nú á Bíldudal í kringum fiskeldi, kalkþörungaverksmiðju og ýmis konar stoðþjónustu sem byggst hefur upp. Sveitarfélagið hefur blómstrað síðustu ár og fólksfjöldaþróunin snúist við. Fólksfjölgunin í Vesturbyggð var sú mesta á Vestfjörðum í fyrra og alls hefur íbúum í sveitarfélaginu fjölgað um 190 á síðustu tíu árum, þar af um 110 manns á síðustu þremur árum.

Það voru Rebekka Hilmarsdóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, Iða Marsibil Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar, Björn Hembre, forstjóri Arnarlax, og Ómar Guðmundsson hjá Hrafnshóli, sem sérhæfir sig í að byggja húsnæði á landsbyggðinni, sem skrifuðu undir samninginn.

Væntanlegum kaupendum íbúðanna munu bjóðast hlutdeildarlán að uppfylltum skilyrðum, en það eru afborgunarlaus lán fyrir allt að 75% af útborgun í íbúð.

Björn Hembre, forstjóri Arnarlax: „Það skiptir okkur máli að fólk geti skapað sér framtíðarlíf hér á staðnum. Arnarlax auglýsti nýverið 37 störf á einu bretti, þar af 31 með starfsstöð á Vestfjörðum, en núverandi framboð húsnæðis á lausu á Bíldudal dugir ekki til að taka við öllu þessu fólki. Arnarlax ákvað því að leggjast á árarnar með Vesturbyggð í þessari uppbyggingu og styðja við áframhaldandi þróun sveitarfélagsins. Við lítum á samninginn sem við höfum undirritað í dag sem vendipunkt í uppbyggingu svæðisins.“

Iða Marsibil Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar: „Um er að ræða mikilvægt skref í uppbyggingu húsnæðis á Bíldudal og þar með innan sveitarfélagsins í heild sinni. Enda er mikil þörf fyrir íbúðarhúsnæði í Vesturbyggð. Nú þegar rúm 30 ár eru síðan nýbygging á Bíldudal hefur verið auglýst á opnum markaði er það reglulega ánægjulegt að þetta verkefni sé að verða að veruleika í samvinnu við Arnarlax og Hrafnshóla.