Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 2 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Sorp­hirða í Vest­ur­byggð

Um mitt sumar bauð Vest­ur­byggð út sorp­hirðu í sveit­ar­fé­laginu, bæði fyrir heimili, stofn­anir og móttöku­svæði. Unnið var út frá frum­grein­ing­ar­vinnu sem verk­fræði­stofan Efla vann fyrir Vest­ur­byggð og útboðs­gögn í fram­haldi af þeirri vinnu unnin af Tækni­þjón­ustu Vest­fjarða, vinna þessi var unnin í samstarfi við Tálkna­fjarð­ar­hrepp sem stendur að útboði með Vest­ur­byggð.


Skrifað: 1. september 2021

Fréttir

Leitast var eftir því af fremsta megni að Vesturbyggð myndi komast í röð þeirra sveitarfélaga sem hvað best myndu uppfylla megin hugsun, sem býr í nýjum lögum varðandi sorp og nefnt er hringrásarhagkerfi.

Terra ehf (áður Gámaþjónustan) hefur um árabil þjónustað sveitarfélagið í þessum málum en nú var Kubbur hlutskarpast og tekur því við. Formleg skipti fara fram núna um mánaðarmótin ágúst – september.

Nýr verktaki mun fá tíma til að komast af stað með þjónustu og verkferla og Vesturbyggð í samvinnu við nýjan verktaka koma af stað kynningarferli sem miðast að því að upplýsa íbúa um fyrirkomulag og tímasetninga á þeim breytingum sem koma skulu.

Stefnt er að því að næsta mánuðinn verði unnið að útfærslu á hirðu og söfnunarsvæðum og að innan þriggja mánaða verði farið af stað skv. nýju kerfi, þar sem endurnýting, endurnotkun og lífrænt efni verður miðdepill þeirrar vinnu í sorphirðu sem fram undan er.  Fyrst um sinn munu íbúar ekki verða varir við neinar breytingar og mun sorpið verða sótt með óbreyttum hætti.

Breytingar á þjónustu og tíðni sorphirðu verða kynntar síðar.

Að lokum er Terra ehf. færðar þakkir fyrir ánægjulegt samstarf á undanförnum árum. Kubb er boðið velkomið til starfa og óskað velfarnaðar á nýjum vettvangi með von um gott samstarf í framtíðinni.

Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs

Geir Gestsson geir@vesturbyggd.is / 450 2300