Spurt&svarað á samfélagsmiðlum
Föstudaginn 12. apríl verður spurningum um tilvonandi sameiningu, kosningar og allt annað er viðkemur sveitarfélaginu svarað í story á Instagram- og Facebookaðgangi Vesturbyggðar.
Skrifað: 10. apríl 2024
Hægt er að senda inn spurningar:
- í beinum skilaboðum á Instagram
- í beinum skilaboðum á Facebook
- í tölvupósti til menningar- og ferðamálafulltrúa
Íbúar eru hvattir til að senda inn spurningar um það sem brennur þeim á hjarta, leitast verður við að svara sem flestum. Athugið að nöfn spyrjenda verða ekki birt.
Menningar- og ferðamálafulltrúi
VMÞ
Valgerður María Þorsteinsdóttir muggsstofa@vesturbyggd.is / 450 2335