Deildarstjóri leikskóladeildar Patreksskóla
Viltu þú vera hluti af metnaðarfullum starfsmannahópi þar sem skapandi og fjölbreyttir kennsluhættir eru hafðir að leiðarljósi? Í Patreksskóla er gróskumikið skólastarf en meðal áherslna skólans er faglegt lærdómssamfélag, einstaklingsmiðað nám, leiðsagnarnám og samþætting námsgreina þar sem grunnþættir menntunar endurspeglast í skólastarfi.
Starfssvið
100% staða deildarstjóra leikskóladeildarinnar Klif í Patreksskóla. Leikskóladeildin er fyrir 5 ára nemendur.
Meginverkefni og ábyrgð
- Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og skólastefnu Vesturbyggðar
- Sér um daglegan rekstur leikskóladeildar í samráði við skólastjóra
- Stjórnar faglegu starfi, gerir áætlanir og stundaskrá fyrir starfsárið og stjórnar öðrum starfsmönnum deildarinnar á hverjum degi
- Situr starfsmannafundi/kennarafundi og tekur þátt í nefndarstarfi ef þess er óskað
- Tekur þátt í samstarfi við grunnskólann og aðrar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast leikskóladeildinni
- Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn skólastjóra
- Skipuleggur forgangsröðun verkefna og langtímamarkmið
- Skipuleggur ásamt skólastjóra starfsumhverfi, tæki og tól sem deildin þarfnast hverju sinni og sér um innkaup
- Vinnur í nánu samstarfi við foreldra / forráðamenn barnanna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfi til að nota starfsheitið kennari
- Sérhæfð hæfni á leikskólastigi
- Færni og reynsla af deildarstjórn á leiksskóla er æskileg
- Hæfni og reynsla í stefnumótun, áætlanagerð og þróun leikskólastarfs æskileg
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund.
- Jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2023
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.
Frekari upplýsingar gefur Ásdís Snót Guðmundsdóttir, skólastjóri og umsóknir sendist á asdissnot@vesturbyggd.is