Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Staða deild­ar­stjóra leik­skóla­deildar Patreks­skóla

Patreks­skóli auglýsir starf deild­ar­stjóra leik­skóla­deildar laust til umsóknar. Staðan er laus frá 1. ágúst n.k.


Skrifað: 20. apríl 2021

Starfsauglýsingar

Í Patreksskóla eru 100 nemendur frá Patreksfirði og Barðaströnd og þar starfa 25 starfsmenn. Nemendur eru á aldrinum 5-16 ára. Nánari upplýsingar um Patreksskóla má finna á vefsíðu skólans.

Meginverkefni og ábyrgð

  • Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og skólastefnu Vesturbyggðar
  • Sér um daglegan rekstur leikskóladeildar í samráði við skólastjóra
  • Stjórnar faglegu starfi, gerir áætlanir og stundaskrá fyrir starfsárið og stjórnar öðrum starfsmönnum deildarinnar á hverjum degi
  • Situr starfsmannafundi/kennarafundi og tekur þátt í nefndarstarfi ef þess er óskað
  • Tekur þátt í samstarfi við grunnskólann og aðrar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast leikskóladeildinni
  • Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn skólastjóra
  • Skipuleggur forgangsröðun verkefna og langtímamarkmið
  • Skipuleggur ásamt skólastjóra starfsumhverfi, tæki og tól sem deildin þarfnast hverju sinni og sér um innkaup
  • Vinnur í nánu samstarfi við foreldra / forráðamenn barnanna

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar er æskileg
  • Færni og reynsla af deildarstjórn á leiksskóla er skilyrði
  • Hæfni og reynsla í stefnumótun, áætlanagerð og þróun leikskólastarfs æskileg
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Hafi yndi af að starfa með börnum

Umsóknarfrestur er til og með 1. maí 2021

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.

Fáist ekki menntaður kennari eða einstaklingur með aðra uppeldismenntun og eða reynslu, kemur til greina að ráða leiðbeinanda tímabundið.

Frekari upplýsingar gefur Ásdís Snót Guðmundsdóttir, skólastjóri