Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Staða frístunda­leið­bein­anda

Bíldu­dals­skóli auglýsir lausa stöðu frístunda­leið­bein­anda. Bíldu­dals­skóli er samrekinn leik- og grunn­skóli. Í grunnskól­anum eru 23 nemendur og í leik­skól­anum eru 12 nemendur og fer fjölg­andi. 

 


Skrifað: 22. desember 2020

Starfsauglýsingar

Frístundin er opin alla skóladaga samkvæmt útgefnu skóladagatali. Í frístund býðst nemendum í 1.-4.bekk að dvelja frá skólalokum til kl.16:00 alla skóladaga.

Í Bíldudalsskóla er laus til umsóknar eftirfarandi staða:

Starfsmaður í frístund 43% starf (vinnutími frá 12:45-16:15)

Starfið felst í að leiðbeina börnum í leik og starfi, skipulagning á frístundastarfinu, samvinna við börn, starfsfólk skólans, foreldra o.fl.

Hæfniskröfur

  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Jákvæðir og góðir samstarfshæfileikar

Umsóknarfrestur er til og með 3. janúar 2021

Ráðið verður í stöðuna frá og með 4. janúar 2021. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga. 

Upplýsingar gefur Signý Sverrisdóttir skólastjóri í síma 450 2333 eða 849 8976. Senda skal umsókn á netfangið signy@vesturbyggd.is og verður móttaka umsókna staðfest. 

Bíldudalsskóli skólastjóri

LRR

Lilja Rut Rúnarsdóttir liljarut@vesturbyggd.is / 450 2333