Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Starf aðal­bókara laust til umsóknar

Vest­ur­byggð óskar eftir að ráða til sín aðal­bókara á fjár­mála- og stjórn­sýslu­sviði.  Aðal­bókari ber ábyrgð á bókhaldi Vest­ur­byggðar, stofnana og fyrir­tækja sveit­ar­fé­lagsins. Um er að ræða 50% starf.


Skrifað: 13. desember 2019

Aðalbókari annast bókun fylgiskjala, afstemmingar og aðra úrvinnslu úr fjárhagsbókhaldi, skýrslugerð og greiningarvinnu úr bókhaldi auk þess að annast uppgjör og áætlanagerð í samvinnu við sviðsstjóra og endurskoðendur. Þá kemur aðalbókari að undirbúningi og vinnu við fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins.

Starfssvið

  • Umsjón, eftirlit og ábyrgð á bókhaldi Vesturbyggðar
  • Afstemmingar og önnur úrvinnsla úr fjárhagsbókhaldi
  • Þátttaka við vinnslu uppgjörs og frágangs bókhalds
  • Þátttaka í áætlanagerð
  • Innra eftirlit
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Viðskiptafræðimenntun eða sambærileg menntun á sviði bókhalds
  • Reynsla og góð þekking á bókhaldi er skilyrði
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu, einkum sveitarfélaga, er æskileg
  • Góð tölvukunnátta skilyrði
  • Nákvæmni og skipulagni í vinnubrögðum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Jákvæðni og góðir samstarfshæfileikar

Umsóknarfrestur er til og með 30. desember 2019

Laun og starfskjör fara eftir kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Nánari upplýsingar veitir Gerður Björk Sveinsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs Vesturbyggðar.

Umsóknum ásamt ferilskrá skal skila í Ráðhús Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði eða í tölvupósti á netfangið vesturbyggd@vesturbyggd.is merkt „Umsókn – Aðalbókari“.

Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

NLS

nannalilja@vesturbyggd.is/+354 450 2300