Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Laust starf: Forstöðu­maður Dímons

Vest­ur­byggð auglýsir eftir forstöðu­manni í félags­mið­stöðina Dímon á Bíldudal.


Skrifað: 14. ágúst 2019

Starfsauglýsingar

Um er að ræða alla umsjón með félagsmiðstöðinni Dímon á Bíldudal veturinn 2019/2020 hið minnsta. Umsjón með starfi Dímons felst í skipulagning á innra starfinu sem og þrifum og þess háttar. Félagsmiðstöðin er opin tvö kvöld í viku í tvo tíma í senn.

Félagsmiðstöðvar á sunnanverðum Vestfjörðum starfa náið saman og sameiginlegir viðburðir eru haldnir um það bil einu sinni í mánuði.

  • Kaup og kjör fara eftir kjarasamningum Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum.
  • Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri.
  • Fyrra starf og/eða nám sem nýtist í starfi er kostur.
  • Sjálfstæð vinnubrögð, stundvísi og jákvætt viðmót skilyrði.

 

Umsóknarfrestur er til og með 30. ágúst 2019