Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir u.þ.b. 4 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Starfs­dagur mánu­daginn 16. mars í skólum

Eins og komið hefur fram í fjöl­miðlum í dag þá hefur heil­brigð­is­ráð­herra ákveðið að virkja heim­ildir sótt­varna­laga sem felur m.a. í sér að skóla­hald verður takmarkað tíma­bundið.

Vest­ur­byggð hefur því ákveðið að starfs­dagur verði í leik- og grunn­skólum í Vest­ur­byggðar mánu­daginn 16. mars n.k. til þess að stjórn­endur og starfs­menn skól­anna geti skipu­lagt skólastafið sem best á því tíma­bili sem takmörkun á skóla­starfi nær til. Foreldrar leik- og grunn­skóla­barna eru beðnir um að fylgjast vel með tilkynn­ingum á heima­síðu Vest­ur­byggðar og heima­síðum grunn- og leik­skóla í Vest­ur­byggð.


Skrifað: 13. mars 2020

Fréttir