Starfsfólk í félagsmiðstöðvar
Auglýst er eftir starfsfólki í félagsmiðstöðvar í Vesturbyggð, auglýst er eftir einstaklingum í þrjár stöður.
- Umsjónarmaður í félagsmiðstöðina Vest-End á Patreksfirði
- Umsjónarmaður í félagsmiðstöðina Dímon á Bíldudal
- Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöðina Vest-End á Patreksfirði
Sem umsjónarmaður, er um að ræða alla umsjón með félagsmiðstöðina Vest-End á Patreksfirði og félagsmiðstöðina Dímon á Bíldudal, veturinn 2022-2023 hið minnsta. Umsjón með starfi felst í skipulagningu á innra starfi, ásamt þrifum og þess háttar. Félagsmiðstöðvar eru opin tvö kvöld í viku, í tvo tíma senn nema annað sé auglýst.
Sem frístundaleiðbeinandi, vinnur hann faglegt starf með ungmennum sem koma að félagsmiðstöðinni.
Félagsmiðstöðvar á sunnanverðum Vestfjörðum starfa náið saman og sameiginlegir viðburður eru haldnir um það bil einu sinni í mánuði.
Umsóknarfrestur er til og með 16. ágúst 2022
Kaup og kjör fara eftir kjarasamningum Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum. Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri. Fyrra starf og/eða nám sem nýtist í starfi er kostur. Sjálfstæð vinnubrögð, stundvísi og jákvætt viðmót skilyrði.
Umsóknir og nánar upplýsingar sendist til Íþrótta- og tómstundafulltrúa á netfangið it@vesturbyggd.is