Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Starfs­maður í afleys­ingar - Araklettur

Leitað er eftir leið­bein­anda/starfs­manni til að leysa af við leik­skólann Araklett á Patreks­firði


Skrifað: 2. mars 2023

Starfsauglýsingar

Um leikskólann

Á leikskólanum Arakletti eru 43 börn og 15 starfsmenn eins og staðan er núna og mjög vel hefur gengið að manna leikskólann í vetur. En það kemur fyrir að okkar góða og metnaðarfulla starfsfólk þurfi að komast til læknis eða vilji komast í frí og leitum við því að sveigjanlegum, lausnarmiðuðu og drífandi starfsfólki til að leysa af þegar vantar. Einkunnarorð leikskólans eru: Leikur, gleði og vinátta og endurspeglast þau vel í starfi leikskólans, þar sem áhersla er lögð á frjálsan leik sem náms- og þroskaleið barnsins. Við vinnum markvisst með að efla málþroska, félagsþroska og ekki minnst að minnka lætin, til að ýta undir tækifærin til náms og þroska í gegnum leikinn. Við erum Vináttuleikskóli og erum að eflast í hugmyndafræði Vináttu/Blæs þar sem fjölbreytileiki og umburðarlyndi eru hornsteinar vináttunnar og viljum við að það endurspeglist í öllu okkar starfi. Við viljum líka að fjölbreytileikinn endurspeglist í starfsfólkinu – svo ef þú hefur gaman af börnum þá hvetjum við þig til að sækja um!

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun barnanna.
  • Sinna faglegu starfi á deildunum eftir leiðbeiningu deildarstjóra
  • Vinna í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
  • Önnur verkefni er varða uppeldi og menntun barnanna.
  • Og auðvitað að vinna samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla og skólastefnu Vesturbyggðar

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Skapandi hugsun og lausnarmiðuð nálgun á verkefni.
  • Umburðarlyndi, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund.
  • Hæfni til að taka frumkvæði og vinna sjálfstætt.
  • Góð íslenskukunnátta.

Umsóknarfrestur er til og með 20. mars 2023

Laun eru samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stéttafélags og sambands íslenskra sveitafélaga.

Allir einstaklingar, óháð kyni og búsetu eru hvattir til að sækja um starfið. Umsókn fylgi ferlisskrá og rökstuðningur fyrir hæfni í starfi.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Bergdís Þrastardóttir, leikskólastjóri

Araklettur leikskólastjóri

Bergdís Þrastardóttir araklettur@vesturbyggd.is / 450 2342