Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.
Starfsmaður í félagsmiðstöðinni Vest-End
Vesturbyggð auglýsir eftir tímabundnum starfsmanni í Félagsmiðstöðina Vest-End á Patreksfirði. Um er að ræða tímabundið starf veturinn 2021-2022.
Skrifað: 25. ágúst 2021
Hlutverk starfsmanns er að halda uppi faglegu starfi með unglingum í frístundastarfi. Starfsmaður vinnur markvisst að því að auka sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra sem taka þátt í starfinu.
- Kaup og kjör fara eftir kjarasamningum Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum
- Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri
- Fyrra starf og/eða nám sem nýtist í starfi er kostur
- Sjálfstæð vinnubrögð, stundvísi og jákvætt viðmót skilyrði
Umsóknarfrestur er til og með 5. september 2021
Nánari upplýsingar veita Guðný Lilja Pálsdóttir, íþrótta og tómstundafulltrúi og Arnheiður Jónsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs.