Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Starfs­maður Muggs­stofu - samfé­lags­mið­stöð á Bíldudal

Í nóvember verður opnuð samfé­lags­mið­stöðin Muggs­stofa á Bíldudal. Samfé­lags­mið­stöðin er samstarfs­verk­efni Vest­ur­byggðar og Skrímsla­set­ursins á Bíldudal. Í samfé­lags­mið­stöð­inni mun fara fram starf­semi Bóka­safns Bíld­dæl­inga, félags­starf aldr­aðra á Bíldudal og þar verður í boði aðstaða fyrir náms­menn og þá sem starfs­að­stöðu þurfa á Bíldudal. Um er að ræða 50% starf. Næsti yfir­maður er sviðs­stjóri fjöl­skyldu­sviðs Vest­ur­byggðar.


Skrifað: 29. október 2020

Starfsauglýsingar

Meginverkefni

  • Veita Muggsstofu forstöðu og sjá um daglegan rekstur samfélagsmiðstöðvarinnar
  • Sinnir útlánum bókasafnsins og viðburðum í samvinnu við forstöðumann bókasafna í Vesturbyggð
  • Skipuleggur og heldur utan um félagsstarf aldraðra á Bíldudal
  • Ber ábyrgð á húsnæði miðstöðvarinnar og sinnir samskiptum við þá sem nýta samfélagsmiðstöðina, útdeilir aðstöðu og vinnurýmum
  • Sér um að auglýsa starfsemi og þjónustu Muggsstofu sem og kynnir viðburði sem þar fara fram

Hæfniskröfur

  • Stúdentspróf eða framhaldsmenntun er kostur
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
  • Íslenskukunnátta í ræðu og riti skilyrði
  • Enskukunnátta æskileg
  • Rík krafa um frumkvæði og framkvæmdagleði
  • Sjálfstæði í störfum og góð skipulagshæfni
  • Rík og góð samskiptahæfni og þjónustulund
  • Jákvæðni og aðlögunarhæfni
  • Góð tölvufærni og þekking á samfélagsmiðlum kostur

Umsóknarfrestur er til og með 10. nóvember 2020

Laun eru samkvæmt samningi Vesturbyggðar og viðkomandi stéttarfélags. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Rebekka Hilmarsdóttir, bæjarstjóri og Arnheiður Jónssdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs.

Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun, starfsferil og fleira skal senda netfangið vesturbyggd@vesturbyggd.is merkt: Umsókn – Muggsstofa á Bíldudal.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu í starfið.

Nafn samfélagsmiðstöðvar á Bíldudal, Muggsstofa er tilvísun til listamannsins og rithöfundarins Muggs (Guðmundar Péturssonar Thorsteinssonar) sem fæddur var á Bíldudal 1891 og er einna þekktastur er fyrir söguna af Dimmalimm.