Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir u.þ.b. 2 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Stóra upplestr­ar­keppnin 2023

Stóra upplestr­ar­keppni grunn­skól­anna á sunn­an­verðum Vest­fjörðum verður haldin í Tálkna­fjarð­ar­kirkju miðviku­daginn 26. apríl kl. 17.


Skrifað: 18. apríl 2023

Markmið keppninnar er að vekja athygli og áhuga í skólum á vönduðum upplestri og framburði. Upplesararnir eru allir nemendur í 7. bekkjum Bíldudalsskóla, Patreksskóla og Tálknafjarðarskóla. Undirbúningur keppninnar hefst á degi íslenskrar tungu ár hvert og lýkur með lokahátíð á vorin. Þátttakendur leggja sig alla fram við undirbúninginn svo upplesturinn verði sem bestur.

Höfundar ársins eru tveir og upplesararnir keppa í þremur umferðum. Í fyrstu umferð verður lesið upp úr skáldsögunni Víti í Vestmannaeyjum eftir Gunnar Helgason og í annarri umferð verða lesin upp ljóð eftir Ingibjörgu Haraldsdóttur. Í þriðju og síðustu umferð lesa nemendur upp ljóð að eigin vali.

Tónlistarskólinn verður með atriði og heitt verður á könnunni. Öll eru hjartanlega velkomin, þá sérstaklega aðstandendur upplesaranna.

Menningar- og ferðamálafulltrúi

VMÞ

muggsstofa@vesturbyggd.is/+354 450 2335