Stóri plokkdagurinn 2024
Sveitarfélagið tekur þátt í Stóra plokkdeginum 2024 sem verður haldinn sunnudaginn 28. apríl. Bæjarbúar eru eindregið hvattir til að taka þátt enda lofar veðurspáin góðu.
Skrifað: 26. apríl 2024
Á Bíldudal
Ruslapoka og einnota hanska má sækja í Muggsstofu, Strandgötu 7, sunnudaginn 28. apríl kl. 10-12. Þar má (en þarf ekki að) skrá sig á svæði til að plokka á, hugmyndin er að dreifingin á plokkurum verði sem best.
Afrakstrinum má skila:
- Í gám við nýja áhaldahúsið og slökkvistöðina, á landfyllingunni á bak við rækjuverið í Strandgötu. Þau sem geta eru hvött til að koma plokkinu þangað.
- Í kör sem verða staðsett annars vegar við Dalbraut 32 og hins vegar við geymsluna strax á vinstri hönd þegar maður kemur inn í bæinn.
- Við nýja áhaldahúsið geta sérlega öflugir plokkarar líka fengið lánaða kerru.
Á Patreksfirði
Ruslapoka og einnota hanska má sækja í íþróttamiðstöðina Bröttuhlíð, Aðalstræti 55, sunnudaginn 28. apríl á opnunartíma, það er kl. 10-15. Þar má (en þarf ekki að) skrá sig á svæði til að plokka á, hugmyndin er að dreifingin á plokkurum verði sem best.
Afrakstrinum má skila:
- Í gám við áhaldahúsið á Þórsgötu 7, gegnt Fjölval. Þau sem geta eru hvött til að koma plokkinu þangað.
- Á söfnunarstað á hverju plokksvæði. Pokunum er þá vel lokað og þeim komið sýnilega fyrir, þó ekki þar sem þeir trufla gangandi eða akandi umferð. Starfsmenn áhaldahúss sækja þá á mánudaginn. Sjá kort hér fyrir neðan sem verður einnig sýnilegt í Bröttuhlíð.
Hvers vegna að plokka?
- Frábær hreyfing fyrir alla aldurshópa.
- Einstaklingsmiðað.
- Hver ræður sínum hraða og tíma.
- Frábært fyrir umhverfið.
- Fegrar nærsamfélagið.
Til að hafa í huga
- Klæða sig eftir aðstæðum.
- Gæta fyllstu varúðar og brýna fyrir börnum að láta nálar og aðra hættulega hluti vera en tilkynna til forráðamanna svo mögulegt sé að fjarlægja þá.
- Ekki er verra að hlaða niður góðri hljóðbók, hlaðvarpi eða lagalista og kippa heyrnartólunum með.
Við hvetjum plokkara til að vera duglegir að taka myndir og merkja Vesturbyggð á samfélagsmiðlum. Öll út að plokka!
Menningar- og ferðamálafulltrúi
Valgerður María Þorsteinsdóttir muggsstofa@vesturbyggd.is / 450 2335