Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 1 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Straum­mæl­ingar við innan­verða Vatneyri

Akvaplan Niva mun í dag setja út straum­mæli við innan­verða Vatneyri á Patreks­firði.


Skrifað: 25. ágúst 2022

Fréttir

Mælinum er ætlað að mæla hafstrauma á svæðinu vegna fyrirhugaðra áforma Arnarlax um sláturhús á Patreksfirði, en mikilvægur liður í áformunum eru svokallaðar biðkvíar sem fyrirhugað er að staðsetja á svæðinu. Með biðkvíum er betur hægt að stjórna framleiðslu í laxeldinu og er slátrun eldisfisks því síður háð utanaðkomandi áhrifum.

Mælirinn mun hanga í A4 belg og er áformað að mælingar standi yfir í 3 mánuði, staðsetningin sést á meðfylgjandi mynd.