Stuðningsaðili í sumarstarf
Félagsþjónusta Vestur-Barðastrandarsýslu auglýsir eftir stuðningsaðila í sumarstarf með möguleika á áframhaldandi starfi í vetur.
Félagsþjónusta Vestur- Barðastrandarsýslu leitast eftir því að ráða stuðningsaðila fyrir ungan dreng á Patreksfirði. Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri.
Starfið felur í sér félagslegan stuðning sem er aðlagaður að þörfum og áhugasviði barnsins. Viðkomandi þarf að búa yfir hæfni í mannlegum samskiptum, metnaði, hugmyndaauðgi og þolinmæði. Um er að ræða fullt starf frá 8-16 á tímabilinu 17. júlí til 22. ágúst 2022. Möguleiki er á áframhaldandi starfi í vetur í 2-3 klst á dag og er því tilvalið sem starf með námi eða aukavinna. Umsóknir sendist á Guðmundu Sigurðardóttir ráðgjafa hjá félagsþjónustunni á radgjafi@vesturbyggd.is.
Starfið er bæði gefandi og skemmtilegt!
Umsóknarfrestur er til og með 16. júní 2022
Nánari upplýsingar veitir Guðmunda Sigurðardóttir, ráðgjafi félagsþjónustunnar í síma 450 2300 eða á radgjafi@vesturbyggd.is.