Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Stuðn­ings­aðila vantar á Bíldudal

Félags­þjón­usta Vestur- Barða­strandarsýslu leitast eftir því að ráða stuðn­ings­aðila fyrir unga stúlku á Bíldudal.


Skrifað: 13. apríl 2022

Starfsauglýsingar

Um er að ræða hlutastarf sem fer fram virka daga, frá kl.13.15/14-16.00 með möguleika á auknu starfshlutfalli.  Starfið felur í sér félagslegan stuðning sem er aðlagaður að þörfum og áhugasviði barnsins.  Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri.

Starfið er gefandi og skemmtilegt! 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun eða reynsla af starfi með fötluðum börnum kostur
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og sjálfstæð vinnubrögð
  • Stundvísi, snyrtimennska og reglusemi

Umsóknarfrestur er til og með 30. maí 2022

Laun eru skv. samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Við hvetjum fólk af öllum kynjum að sækja um. Nánari upplýsingar veitir Arnheiður Jónsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs.

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs

Arnheiður Jónsdóttir arnheidur@vesturbyggd.is / 450 2300