Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Stuðn­ings­aðila vantar á Patreks­firði

Félags­þjón­usta Vestur-Barða­strandarsýslu leitast eftir því að ráða stuðn­ings­aðila fyrir ungan dreng á Patreks­firði frá og með 23. ágúst 2021. 


Skrifað: 29. júní 2021

Um er að ræða hlutastarf sem fer fram virka daga frá kl. 14-16 með möguleika á auknu starfshlutfalli. Starfið felur í sér félagslegan stuðning sem er aðlagaður að þörfum og áhugasviði barnsins. Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri. 

Starfið er gefandi og skemmtilegt! 

Menntunar-og hæfniskröfur:

  • Menntun eða reynsla af starfi með fötluðum börnum kostur
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og sjálfstæð vinnubrögð
  • Stundvísi, snyrtimennska og reglusemi

Umsóknarfrestur er til og með 1. ágúst 2021

Laun eru skv. samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Við hvetjum fólk af öllum kynjum að sækja um. Nánari upplýsingar veitir Svanhvít Sjöfn Skjaldardóttir, ráðgjafi félagsþjónustunnar.