Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Stuðn­ings­full­trúi - Bíldu­dals­skóli

Viltu slást í hóp starfs­manna sem hafa starfs­gleði, faglegan metnað og umhyggju fyrir velferð nemenda að leið­ar­ljósi? Meðal áherslna Bíldu­dals­skóla er faglegt lærdóms­sam­félag, einstak­lings­miðað nám, leið­sagn­arnám og samþætting náms­greina þar sem grunn­þættir mennt­unar endur­speglast í skóla­starfinu.

Bíldu­dals­skóli vinnur með Uppbygg­ing­ar­stefnuna að leið­ar­ljósi. Einkunn­arorð skólans eru: Samskipti – Samvinna – Sköpun


Skrifað: 3. apríl 2023

Starfsauglýsingar

Bíldu­dals­skóli leitar að að stuðn­ing­full­trúa til þess að slást í hópinn. Um er að ræða 100% starf frá 15. ágúst 2023.

Stuðningsfulltrúi aðstoðar nemendur – náms og félagslega með það að markmiði að auka færni þeirra og sjálfstæði. Stuðningsfulltrúi vinnur í nánu samstarfi við kennara eða sérkennara, eftir áætlun og leiðsögn þeirra. Fylgir einum eða fleiri nemendum í frímínútum og vettvangsferðum og aðstoðar þá eftir þörfum. Situr fundi með umsjónarkenna.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Nám stuðningsfulltrúa eða sambærilegt nám æskilegt
  • Reynsla af uppeldi og kennslustörfum í grunnskóla æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði í störfum og faglegur metnaður
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslensku og tölvukunnátta
  • Vilji til að bæta við þekkingu sína
  • Stundvísi

Umsóknarfrestur er til og með 1. ágúst 2023

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar veitir Lilja Rut Rúnarsdóttir, staðgengill skólastjóri Bíldudalsskóla í síma 450 2333/ 866 2245. Umsóknir sendist á netfangið liljarut@vesturbyggd.is