Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Stuðn­ings­full­trúi í Bíldu­dals­skóla

Viltu slást í hóp starfs­manna sem hafa starfs­gleði, faglegan metnað og umhyggju fyrir velferð nemenda að leið­ar­ljósi? Bíldu­dals­skóli leitar að að stuðn­ing­full­trúa/skóla­liða til þess að slást í hópinn. Um er að ræða 80 – 100% starf.


Skrifað: 16. febrúar 2022

Starfsauglýsingar

Stuðningsfulltrúi aðstoðar nemendur – náms og félagslega með það að markmiði að auka færni þeirra og sjálfstæði. Stuðningsfulltrúi vinnur í nánu samstarfi við kennara eða sérkennara, eftir áætlun og leiðsögn þeirra. Bíldudalsskóli vinnur með Uppbyggingarstefnuna að leiðarljósi. Einkunnarorð skólans eru: Samskipti – Samvinna – Sköpun

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Nám stuðningsfulltrúa eða sambærilegt nám æskilegt
  • Reynsla af uppeldi og kennslustörfum í grunnskóla æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði í störfum og faglegur metnaður
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslensku og tölvukunnátta
  • Vilji til að bæta við þekkingu sína

Umsóknarfrestur er til og með 1. mars 2022

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar veitir Elsa Ísfold Arnórsdóttir, skólastjóri Bíldudalsskóla í síma 450 2333, 450 2344, 699 3422. Umsóknir sendist á netfangið elsa@vesturbyggd.is

Bíldudalsskóli skólastjóri

LRR

Lilja Rut Rúnarsdóttir liljarut@vesturbyggd.is / 450 2333