Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Stuðn­ings­full­trúi — Patreks­skóla

Viltu slást í hóp starfs­manna sem hafa starfs­gleði, faglegan metnað og umhyggju fyrir velferð nemenda að leið­ar­ljósi? Meðal áherslna Patreks­skóla er faglegt lærdóms­sam­félag, einstak­lings­miðað nám, leið­sagn­arnám og samþætting náms­greina þar sem grunn­þættir mennt­unar endur­speglast í skóla­starfinu.


Skrifað: 12. febrúar 2025

Patreksskóli leitar að að stuðningfulltrúa til þess að slást í hópinn. Um er að ræða 50-100% starf frá 24.febrúar 2025. Stuðningsfulltrúi aðstoðar nemendur náms- og félagslega með það að markmiði að auka færni þeirra og sjálfstæði. Stuðningsfulltrúi vinnur í nánu samstarfi við kennara eða sérkennara, eftir áætlun og leiðsögn þeirra. Fylgir einum eða fleiri nemendum í frímínútum og vettvangsferðum og aðstoðar þá eftir þörfum. Situr fundi með umsjónarkennurum.

Patreksskóli vinnur með uppbyggingarstefnuna að leiðarljósi. Einkunnarorð skólans eru: Jákvæðni – Virðing – Samvinna

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Nám stuðningsfulltrúa eða sambærilegt nám æskilegt
  • Reynsla af uppeldi og kennslustörfum í grunnskóla æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði í störfum og faglegur metnaður
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslensku og tölvukunnátta
  • Vilji til að bæta við þekkingu sína
  • Stundvísi

Umsóknarfrestur er til og með 21. febrúar 2025

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar veitir Jónína Helga Sigurðardóttir Berg, skólastjóri Patreksskóla. Umsóknir sendist á netfangið joninas@vesturbyggd.is

Patreksskóli skólastjóri

JHSB

joninas@vesturbyggd.is/+354 450 2320