Stuðningsfulltrúi óskast í Bíldudalsskóla
Viltu slást í hóp starfsmanna sem hafa starfsgleði, faglegan metnað og umhyggju fyrir velferð nemenda að leiðarljósi? Meðal áherslna Bíldudalsskóla er faglegt lærdómssamfélag, einstaklingsmiðað nám, leiðsagnarnám og samþætting námsgreina þar sem grunnþættir menntunar endurspeglast í skólastarfinu.
Bíldudalsskóli leitar að að stuðningfulltrúa/skólaliða til þess að slást í hópinn.
Um er að ræða 80 – 100% starf.
Bíldudalsskóli vinnur með Uppbyggingarstefnuna að leiðarljósi. Einkunnarorð skólans eru: Samskipti – Samvinna – Sköpun
Starfslýsing
Stuðningsfulltrúi aðstoðar nemendur – náms og félagslega með það að markmiði að auka færni þeirra og sjálfstæði. Stuðningsfulltrúi vinnur í nánu samstarfi við kennara eða sérkennara, eftir áætlun og leiðsögn þeirra. Fylgir einum eða fleiri nemendum í frímínútum og vettvangsferðum og aðstoðar þá eftir þörfum. Situr fundi með umsjónarkenna. Einnig aðstoðar stuðningsfulltrúi/skólaliði nemendur í matsal og sér um frágang og uppvask eftir mat.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Nám stuðningsfulltrúa eða sambærilegt nám æskilegt
- Reynsla af uppeldi og kennslustörfum í grunnskóla æskileg
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði í störfum og faglegur metnaður
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslensku og tölvukunnátta
- Vilji til að bæta við þekkingu sína
Umsóknarfrestur er til og með 23. september 2022
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar veitir Elsa Ísfold Arnórsdóttir, skólastjóri Bíldudalsskóla í síma 450 2333, 450 2344, 699 3422. Umsóknir sendist á netfangið elsa@vesturbyggd.is