Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Stuðn­ings­full­trúi óskast í Bíldu­dals­skóla

Viltu slást í hóp starfs­manna sem hafa starfs­gleði, faglegan metnað og umhyggju fyrir velferð nemenda að leið­ar­ljósi? Meðal áherslna Bíldu­dals­skóla er faglegt lærdóms­sam­félag, einstak­lings­miðað nám, leið­sagn­arnám og samþætting náms­greina þar sem grunn­þættir mennt­unar endur­speglast í skóla­starfinu.


Skrifað: 14. september 2022

Starfsauglýsingar

Bíldu­dals­skóli leitar að að stuðn­ing­full­trúa/skóla­liða til þess að slást í hópinn.

Um er að ræða 80 – 100% starf. 

Bíldudalsskóli vinnur með Uppbyggingarstefnuna að leiðarljósi. Einkunnarorð skólans eru: Samskipti – Samvinna – Sköpun

Starfslýsing

Stuðningsfulltrúi aðstoðar nemendur – náms og félagslega með það að markmiði að auka færni þeirra og sjálfstæði. Stuðningsfulltrúi vinnur í nánu samstarfi við kennara eða sérkennara, eftir áætlun og leiðsögn þeirra. Fylgir einum eða fleiri nemendum í frímínútum og vettvangsferðum og aðstoðar þá eftir þörfum. Situr fundi með umsjónarkenna. Einnig aðstoðar stuðningsfulltrúi/skólaliði nemendur í matsal og sér um frágang og uppvask eftir mat.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Nám stuðningsfulltrúa eða sambærilegt nám æskilegt
  • Reynsla af uppeldi og kennslustörfum í grunnskóla æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði í störfum og faglegur metnaður
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslensku og tölvukunnátta
  • Vilji til að bæta við þekkingu sína

Umsóknarfrestur er til og með 23. september 2022

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar veitir Elsa Ísfold Arnórsdóttir, skólastjóri Bíldudalsskóla í síma 450 2333, 450 2344, 699 3422. Umsóknir sendist á netfangið elsa@vesturbyggd.is