Stuðningsfulltrúi unglingastigs Patreksskóla
Viltu vera hluti af lifandi, faglegu og skemmtilegu samfélagi? Stuðningsfulltrúi í skóla óskast til starfa í Patreksskóla í 70% stöðu.
Skrifað: 10. janúar 2022
Patreksskóli leitar að metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi starfsmanni með þekkingu og áhuga á skólastarfi. Patreksskóli vinnur með Uppbyggingarstefnuna að leiðarljósi og einkunnarorð skólans eru jákvæðni, virðing og samvinna.
Starfssvið
Gerð er krafa um sérstakt nám fyrir stuðningsfulltrúa eða sambærilegt nám og talsverða reynslu í starfi. Starfsmaður starfar með nemendum með einhvers konar fötlun, röskun og/eða sérþarfir samkvæmt skilgreiningu sérfræðings. Sérþarfir nemendanna eru þess eðlis að þeir þurfa sérstakan starfsmann með sér í öllu skólastarfi. Meðal verkefna eru félagslegur stuðningur og þjálfun.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Nám stuðningsfulltrúa eða sambærilegt nám æskilegt
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með unglingum æskileg
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslensku og tölvukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 24. janúar 2022
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Karlar jafnt sem konur hvattir til að sækja um.
Frekari upplýsingar um störfin gefur Ásdís Snót Guðmundsdóttir, asdissnot@vesturbyggd.is og í síma 863 0465. Umsóknir skulu berast á sama netfang.