Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir u.þ.b. 1 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.
Styrkir menningar- og ferðamálaráðs
Ráðið afgreiðir styrki fjórum sinnum á ári fyrir verkefni og viðburði á yfirstandandi almanaksári. Umsóknarfrestur er til og með (með fyrirvara um breytingar):
- 1. febrúar
- 1. maí
- 1. september
- 1. desember
Menningar- og ferðamálafulltrúi starfar með menningar- og ferðamálaráði og veitir ráðgjöf og upplýsingar varðandi styrki ráðsins. Markmiðið er að stuðla að öflugu menningarlífi og ferðaþjónustu í samvinnu við einkaaðila, félagasamtök og opinberar stofnanir.