Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 3 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Styrkir vegna náms­kostn­aðar eða verk­færa- og tækja­kaupa fatlaðs fólks

Byggða­samlag Vest­fjarða um málefni fatlaðs fólks (BsVest) vekur athygli á rétti fólks til að sækja um styrki skv. 25. grein laga nr. 37/2018  um þjón­ustu við fatlað fólk með miklar stuðn­ings­þarfir.


Skrifað: 27. október 2020

Auglýsingar

BsVest  er heimilt að veita styrk til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga, enda telst námið hafa gildi sem hæfing eða endurhæfing. Einnig  er heimilt að veita þeim sem eru 18 ára og eldri styrk til verkfæra og tækjakaupa í sambandi við heimavinnu eða sjálfstæða starfssemi, enda teljist starfsemin hafa gildi sem félagsleg hæfing eða endurhæfing sem miði að því að auðvelda fötluðu fólki að skapa sér atvinnu.

Umsóknafrestur er til 26. nóvember 2020 og skulu umsóknir berast til félagsþjónustu lögheimilissveitarfélags.

 

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs

Arnheiður Jónsdóttir arnheidur@vesturbyggd.is / 450 2300