Sumarafleysing við Hafnir Vesturbyggðar
Hafnir Vesturbyggðar auglýsa eftir starfsmanni í afleysingar fyrir hafnarverði við Hafnir Vestubyggðar sumarið 2021. Um er að ræða afleysingar við hafnir í sveitarfélaginu í hlutastarfi á tímabilinu frá 25. maí 2021 til og með 31. ágúst 2021.
Starfsmaðurinn starfar við leiðsögn og öryggiseftirlit við höfn og sinnir verkefnum hafnarvarða, s.s. vigtun afla, samskipti við Fiskistofu, móttaka og röðun skipa í höfn, afgreiðsla vatns og rafmagns til skipa og tilfallandi viðhaldsvinnu. Starfsstöðin er á Patrekshöfn, en mögulegt er að sinna þurfi löndunum á Bíldudals- og Brjánslækjarhöfn
Laun og starfskjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Hæfniskröfur
- Réttindi sem löggiltur vigtarmaður eða að vera tilbúinn til að sækja námskeið til öflunnar slíkra réttinda og standast próf
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur
- Góð tölvukunnátta
- Skipulögð vinnubrögð
- Sjálfstæði og frumkvæðni
- Lipurð í mannlegum samskiptum og góð þjónustulund
- Umsækjandi þarf að vera 20 ára eða eldri
Umsóknarfrestur er til og með 4. maí 2021
Umsóknir skulu vera skriflegar og skulu þær berast til Vesturbyggðar á netfangið elfar@vesturbyggd.is merkt: Umsókn – afleysing hafnarvörður.