Sumarafleysing við Hafnir Vesturbyggðar
Hafnasjóður Vesturbyggðar auglýsir eftir starfsmanni í afleysingar fyrir hafnarverði við Hafnir Vestubyggðar sumarið 2022. Um er að ræða afleysingar við hafnir í sveitarfélaginu á tímabilinu frá maí til loka ágúst 2022.
Starfsmaðurinn starfar við leiðsögn og öryggiseftirlit við höfn og sinnir verkefnum hafnarvarða, s.s. vigtun afla, samskipti við opinberar stofnanir, móttaka og röðun skipa í höfn, afgreiðsla vatns og rafmagns til skipa og almennum störfum. Starfsstöðin er á Patrekshöfn, en mögulegt er að sinna þurfi löndunum á Bíldudals- og Brjánslækjarhöfn. Allir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.
Laun og starfskjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Hæfniskröfur
- Réttindi sem löggiltur vigtarmaður eða að vera tilbúinn til að sækja námskeið til öflunnar slíkra réttinda.
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur.
- Góð tölvukunnátta.
- Skipulögð vinnubrögð.
- Sjálfstæði og frumkvæðni.
- Lipurð í mannlegum samskiptum og góð þjónustulund.
- Umsækjandi þarf að vera 20 ára eða eldri.
Umsóknarfrestur er til og með 19. apríl 2022
Umsóknir skulu vera skriflegar og skulu þær berast til Vesturbyggðar á netfangið elfar@vesturbyggd.is merkt: Umsókn – afleysing hafnarvörður.