Sumarafleysing við Hafnir Vesturbyggðar
Hafnir Vesturbyggðar auglýsa eftir starfsmanni í afleysingar fyrir hafnarverði við Hafnir Vesturbyggðar sumarið 2019. Um er að ræða afleysingar við hafnir í sveitarfélaginu í hlutastarfi á tímabilinu frá 1. maí 2019 til 1. september 2019.
Starfsmaðurinn starfar við leiðsögn og öryggiseftirlit við höfn og sinnir verkefnum hafnarvarða, s.s. vigtun afla, samskipti við Fiskistofu, móttaka og röðun skipa í höfn, afgreiðsla vatns og rafmagns til skipa og tilfallandi viðhaldsvinnu.
Laun og starfskjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag
Hæfniskröfur
- Réttindi sem löggiltur vigtarmaður eða að vera tilbúinn til að sækja námskeið til öflunnar slíkra réttinda og standast próf
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur
- Góð tölvukunnátta
- Skipulögð vinnubrögð
- Sjálfstæði og frumkvæðni
- Lipurð í mannlegum samskiptum og góð þjónustulund
- Umsækjandi þarf að vera 20 ára eða eldri
Umsóknarfrestur er til og með 4. apríl 2019
Umsóknir skulu vera skriflegar og skulu þær berast til Vesturbyggðar á netfangið vesturbyggd@vesturbyggd.is merkt: Umsókn – afleysing hafnarvörður.