Sumarmarkaður Vestfjarðaleiðarinnar á Patró
Matvælaframleiðendur, handverksfólk, listafólk, smáframleiðendur og aðrir sem vilja taka þátt í markaðinum eru hvött til að skrá sig til leiks sem fyrst og sýna hvað Vestfjarðaleiðin hefur upp á margt að bjóða.
Vestfjarðaleiðin er ferðamannaleið um Vestfirði og Dali með einstökum áningarstöðum og upplifunum þar sem auðvelt er að kanna króka og kima svæðisins og upplifa óspillta náttúru. Á svæðinu eru líka fjölmargir matvælaframleiðendur, handverksfólk og aðrir smáframleiðendur sem með framlagi sínu bæta enn frekar á jákvæða upplifun gestanna sem sækja okkur heim. Vestfjarðastofu blæs nú til kynninga á þessum aðilum með sumarmörkuðum á Vestfjarðaleiðinni í júlí. Settir verða upp markaðir á fjórum stöðum og fjórum mismunandi dagsetningum sem hér segir:
- Búðardalur 6. júlí
- Hólmavík 14. júlí
- Patreksfjörður 15. júlí
- Ísafjörður 26. júlí
Hægt er að skrá sig til þátttöku á öllum mörkuðunum eða bara útvöldum. Dagana sem markaðirnir eru á Ísafirði og Patreksfirði eru skemmtiferðaskip í höfn svo það verður margt ferðafólk á ferli.
Ef einhverjar spurningar eru má hafa samband við Þórkötlu hjá Markaðsstofu Vestfjarða á thorkatla@vestfirdir.is.