Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir næstum 2 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Sumar­nám­skeið 2022

Á sumrin stendur sveit­ar­fé­lagið fyrir námskeiðum fyrir börn á Patreks­firði og Bíldudal. Lögð er áhersla á að börnin stundi útivist, kynnast nátt­úr­unni, umhverfið, nýjum og klass­ískum leikjum og íþróttum.


Skrifað: 13. júní 2022

Auglýsingar

Á Patreksfirði og Bíldudal er umhverfis-, íþrótta- og leikjanámskeið í boði fyrir börn fædd 2012 – 2015 á eftirtöldum tímabilum, þessi tímabil eru

  • Bíldudalur 22. júní – 1. júlí
  • Patreksfjörður 5.-13. júlí
  • Bíldudalur 14.-25. júlí
  • Patreksfjörður 3. – 12 ágúst.

Umsjónarmaður námskeiða á bæði Patreksfirði og Bíldudal er hún Sigurlaug Anna.

Um er að ræða tvö námskeið á hvorum stað, annað er 8 dagar og hitt 9 dagar. Þau standa frá 12:00 til 15:00 dag hvern.

Gjald er tekið fyrir þá daga sem þjónustan er nýtt, þ.e. 1.500 krónur á dag.

Börnin taka með sér nesti og eru klædd eftir veðri. Takið eftir því að sömu lýðheilsuviðmið gilda um nesti á sumarnámskeiðum eins og nesti í grunnskólum.