Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Sumarstörf á Minja­safninu að Hnjóti

Leitað er að jákvæðum, þjón­ustu­lund­uðum, skipu­lögðum og snyrti­legum einstak­lingum með hæfni í mann­legum samskiptum til að sinna sumarstörfum að Hnjóti.


Skrifað: 26. febrúar 2019

Starfsauglýsingar

Umsóknarfrestur er til og með 15. mars 2019

Leitað er að jákvæðum, þjónustulunduðum, skipulögðum og snyrtilegum einstaklingum með hæfni í mannlegum samskiptum. Helstu verkefni starfsfólks felast m.a. í leiðsögn um safnið, afgreiðslu í kaffiteríu og almennum þrifum.

Gott vald á íslenskri og enskri tungu er skilyrði og frekari tungumálakunnáta er kostur. Frítt húsnæði er í boði fyrir starfsfólk í 5 km fjarlægð frá safninu. Eigið farartæki er kostur. Frábært tækifæri fyrir áhugafólk um sögu, náttúru og menningu sunnanverðra Vestfjarða.

Umsóknir sendist á netfangið museum@hnjotur.is fyrir 15. mars n.k. Frekari upplýsingar gefur Inga Hlín Valdimarsdóttir í síma 456 1511