Súpufundur ferðaþjóna á Tálknafirði
Markaðsstofa Vestfjarða stendur fyrir súpufundi ferðaþjóna í hliðarsal Hópsins á Tálknafirði þann 31. október kl. 12:30-14:00.
Skrifað: 29. október 2024
Markmiðið er að kynna starfsemi Markaðsstofunnar, taka létt spjall um ferðaþjónustuna á svæðinu og tækifærin.
Allir ferðaþjónar og þau sem hafa áhuga á ferðamálum í Tálknafirði og sunnanverðum Vestfjörðum eru hvött til að mæta.
Súpa og brauð í boði.