Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Svæð­is­stjóri - Seiða­fram­leiðsla

Arnarlax leitar að metn­að­ar­fullum og áhuga­sömum svæð­is­stjóra í seiða­fram­leiðslu fyrir­tæk­isins við Gileyri í Tálkna­firði.


Skrifað: 15. maí 2023

Starfsauglýsingar

Arnarlax er leiðandi laxeldisfyrirtæki á Íslandi með aðalstarfsemi á Vestfjörðum og með höfuðstöðvar á Bíldudal. Fyrirtækið er að fullu lóðrétt samþætt með alla þætti virðiskeðjunnar á sinni hendi, þar með talið seiðaframleiðslu, eldi, vinnslu og sölu.

Arnarlax teymið samanstendur nú af um 200 dyggu og hæfu fólki á öllum stigum virðiskeðjunnar. Hjá okkur starfar einvala hópur fólks af öllum kynjum og ýmsum þjóðernum sem vinna saman að framleiðslu fyrsta flokks lax til viðskiptavina um allan heim.

Við erum með starfsemi í 5 mismunandi sveitarfélögum með starfsstöðvar á Bíldudal, Patreksfirði og Reykjavík og með seiðaframleiðslu á Tálknafirði, Þorlákshöfn og Hallkelshólum. Arnarlax framleiddi 16.000 tonn af laxi árið 2022 og gerir ráð fyrir miklum vexti á komandi árum.

Arnarlax er jafnlaunavottað fyrirtæki.

Arnarlax hvetur alla áhugasama einstaklinga til að sækja um starfið, óháð kyni.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð á framleiðslu þar með talið framleiðsluáætlun og daglegum rekstri
  • Tryggja að verkefni séu unnin í samræmi við verklag og gæðakerfi
  • Leiða og hvetja starfsfólk í átt að sameiginlegum markmiðun og bestun framleiðslu
  • Aðstoð við skipulagningu, samhæfingu og eftirfylgni með verkþáttum
  • Skýrslugjöf til yfirmanns seiðaframleiðslu
  • Þátttaka í þróun umbóta- og þróunarverkefna

Menntunar og hæfniskröfur

  • Vandvirkur einstaklingur sem gætir að eigin heilsu og öryggi
  • Góð samskiptahæfni, sjálfstæð vinnubrögð og árangursmiðað hugarfar
  • Leitum að góðum liðsmanni sem hefur áhuga á framleiðslu
  • Hefur gaman af krefjandi verkefnum
  • Reynsla af seiðaframleiðslu
  • Háskólamenntun eða starfsréttindi sem nýtist í starfi er kostur
  • Góð tölvukunnátta
  • Enskukunnátta er skilyrði

Arnarlax býður

  • Spennandi vinnuumhverfi í ört vaxandi atvinnugrein
  • Frían aðgang að íþróttamannvirkjum á svæðinu
  • Stuðning til náms á því sviði sem starfið tekur til
  • Góð tækifæri til að þróast, bæði persónulega og faglega
  • Fjölbreytt verkefni, námskeið og þjálfun
  • Samkeppnishæf laun

Umsóknarfrestur er til og með 21. maí 2023

Ef þú uppfyllir ofangreind skilyrði og hefur áhuga á að ganga til liðs við kraftmikið teymi okkar, vinsamlegast sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi.

Okkur hlakkar til að heyra frá þér!

Nánari upplýsingar veitir mannauðsstjóri Arnarlax, Karen Ósk Pétursdóttir, karen@arnarlax.is.