Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 1 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Sveit­ar­stjórn og bæjar­stjórn hittust

Þriðju­daginn 8. nóvember 2022 hittust bæja­stjórn Vest­ur­byggðar og sveit­ar­stjórn Tálkna­fjarð­ar­hrepps. Var þessi hitt­ingur í fram­haldi af ákvörðun þeirra beggja fyrr á árinu um að hefja óform­legar viðræður um stofnun nýs sveit­ar­fé­lags á sunn­an­verðum Vest­fjörðum.


Skrifað: 10. nóvember 2022

Farin var skoðunarferð um Bíldudal, Tálknafjörð og Patreksfjörð og tekið samtal um með hvaða hætti viðræður sveitarfélaganna verði skipulagðar. Á næstu vikum verður gengið frá samningi við KPMG vegna ráðgjafar við verkefnið, skipaðir verða fulltrúar í verkefnastjórn og óformlegar viðræður sveitarfélaganna munu halda áfram. Samráð við íbúa er hluti af þeirri vinnu sem fram undan er. Sveitarfélögin eiga margt sameiginlegt og góð samvinna hefur einkennt starfsemi þeirra undanfarin ár. Ljóst er að samgöngumál verða efst á lista yfir áherslu sveitarfélaganna gagnvart ríkisvaldinu í viðræðum sveitarfélaganna.