Hoppa yfir valmynd

Sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar 2024 - fram­boðs­frestur til 29. mars

Skila­frestur fram­boða vegna sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga 2024 í sameinuðu sveit­ar­fé­lagi Tálkna­fjarð­ar­hrepps og Vest­ur­byggðar rennur út kl. 12:00 á hádegi þann 29. mars 2024. Tilkynn­ingum um framboð skal skilað til yfir­kjör­stjórnar í ráðhúsi Vest­ur­byggðar, Aðalstræti 75, Patreks­firði föstu­daginn 29. mars milli klukkan 10:00 og 12:00


Skrifað: 25. mars 2024

Nánari upplýsingar gefur yfirkjörstjórn Vesturbyggðar. Leiðbeiningar vegna framboða til sveitarstjórnarkosninga má nálgast hér: Stjórnarráðið | Framboð – leiðbeiningar (stjornarradid.is)

Yfirkjörstjórn vill vekja sérstaka athygli á 39. gr. kosningalaga. nr. 112/2021, en þar er kveðið á um fjölda meðmælenda með framboðslistum sem skuli vera að lágmarki 20 og hámarki 40 í sameinuðu sveitarfélagi Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar.

Yfirkjörstjórn Sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar.