Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Sýslu­mað­urinn á Vest­fjörðum

Laus er til umsóknar staða aðal­bókara við embættið.

 


Skrifað: 18. ágúst 2023

Starfsauglýsingar

Um er að ræða starf til eins árs með möguleika á framlengingu að þeim tíma liðnum.

Starfshlutfall er 50% en möguleiki á hækkuðu starfshlutfalli fljótlega og er vinnutími að einhverju marki sveigjanlegur.

Æskileg starfstöð er á skrifstofu embættisins á Patreksfirði en einnig er möguleiki að sinna starfinu á skrifstofu embættisins á Hólmavík eða Ísafirði.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Um launakjör fer eftir gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með almennu bókhaldi embættisins
  • Annast uppgjör og gerð rekstraráætlana
  • Frágangur reikninga og eftirfylgni á greiðslu þeirra
  • Önnur verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Góð almenn menntun og reynsla af bókhaldsstörfum æskileg
  • Einhver þekking og reynsla af reikningshaldi og áætlanagerð
  • Reynsla og þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Þekking og kunnátta á helstu tölvukerfi
  • Jákvætt viðmót, góð samskiptahæfni og þjónustulund
  • Frumkvæði, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð

Umsóknarfrestur er til og með 27. ágúst 2023

Umsókn skal skilað í gegnum umsóknarkerfi Alfred.is og þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og því hvernig umsækjandi fellur að hæfnikröfum til starfans. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Nánari upplýsingar um starfið veita Jónas B. Guðmundsson, sýslumaður, netfang jg@syslumenn.is og Helga Dóra Kristjánsdóttir, skrifstofustjóri, netfang hdk@syslumenn.is eða í síma 458 2400.