Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 1 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.
Talning atkvæða fer fram fyrir opnum dyrum
Talning atkvæða í íbúakosningu um sameiningu Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar skal fara fram fyrir opnum dyrum svo að almenningi gefist kostur á að vera viðstaddur eftir því sem húsrúm leyfir.
Viðstöddum ber að hlíta fyrirmælum kjörstjórnar og starfsfólks hennar á talningarstað. Heimilt er að vísa hverjum þeim af talningarstað sem veldur röskun eða truflun á flokkun eða talningu atkvæða.
Talning atkvæða hefst kl. 20:00 laugardaginn 28. október næstkomandi.
- Í Tálknafjarðarhrepp verður talið í íþróttahúsi Tálknafjarðar í íþróttasalnum
- Í Vesturbyggð verður talið í Félagsheimilinu Patreksfirði