Hoppa yfir valmynd

Talning atkvæða fer fram fyrir opnum dyrum

Talning atkvæða í íbúa­kosn­ingu um samein­ingu Tálkna­fjarð­ar­hrepps og Vest­ur­byggðar skal fara fram fyrir opnum dyrum svo að almenn­ingi gefist kostur á að vera viðstaddur eftir því sem húsrúm leyfir.


Skrifað: 26. október 2023

Auglýsingar

Viðstöddum ber að hlíta fyrirmælum kjörstjórnar og starfsfólks hennar á talningarstað.  Heimilt er að vísa hverjum þeim af talningarstað sem veldur röskun eða truflun á flokkun eða talningu atkvæða.

Talning atkvæða hefst kl. 20:00 laugardaginn 28. október næstkomandi.

  • Í Tálknafjarðarhrepp verður talið í íþróttahúsi Tálknafjarðar í íþróttasalnum
  • Í Vesturbyggð verður talið í Félagsheimilinu Patreksfirði