Þjónusta Bjarkarhlíðar á Vestfjörðum
Bjarkarhlíð býður upp á þjónustu fyrir alla íbúa á Vesturlandi og Vestfjörðum. Ráðgjafi Bjarkarhlíðar verður á Patreksfirði fimmtudaginn 1. febrúar.
Skrifað: 24. janúar 2024
Bjarkarhlíð er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis. Markmið er að veita stuðning, ráðgjöf og fræðslu um eðli og afleiðingar ofbeldis. Boðið er upp á áfallamiðaða ráðgjöf, stuðning og upplýsingar fyrir þolendur ofbeldis af öllum kynjum, 18 ára og eldri.
Upplýsingar um lausa tíma er að finna á heimasíðu Bjarkarhlíðar eða í NOONA appinu.