Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Þjón­ustu­full­trúi Verk Vest á Patreks­firði

Verka­lýðs­félag Vest­firð­inga/Verk Vest auglýsir eftir þjón­ustu­full­trúa til félagsins með starfs­stöð á Patreks­firði. Um er að ræða 87% starfs­hlut­fall með vinnu­tíma frá kl.09:00 alla virka daga. Æski­legt er að viðkom­andi geti hafið störf 1. desember 2021.


Skrifað: 4. október 2021

Starfsauglýsingar

Ábyrgðasvið

  • Almenn þjónusta við félagsmenn
  • Aðstoð í vinnuréttindamálum
  • Umsjón netmiðlum félagsins
  • Aðstoð við skýrslugerð
  • Aðstoð við innheimtu og rafrænum skráningum
  • Símsvörun og önnur tilfallandi skrifstofustörf

Hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi – Stúdentspróf eða hagnýt menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af uppgjörsvinnu, skýrslugerð og afstemmingum er kostur
  • Þekking á Dk bókhaldskerfi er kostur
  • Gott vald á íslensku. Önnur tungumál t.d. enska og pólska kostur
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum mikilvægur kostur
  • Góðir samskiptahæfileikar og rík þjónustulund skilyrði

Umsóknarfrestur er til og með 15. október 2021

Upplýsingar veita:

Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður og framkv.stjóri Verk Vest finnbogi@verkvest.is og Bergvin Eyþórsson, varaformaður og skrifstofustjóri bergvin@verkvest.is

Umsóknir með ferilskrá og kynningarbréfi óskast sendar á finnbogi@verkvest.is