Þjónustumiðstöð áhaldahúss á Bíldudal flytur
Á undanförnum mánuðum hefur þjónustumiðstöð áhaldahússins á Bíldudal unnið að því að losa núverandi húsnæði við Strandgötu 7 þar sem aðsetur þjónustumiðstöðvar hefur verið undanfarin ár. Næstu mánuði verður áhaldahús á Bíldudal til húsa í húsnæði björgunarsveitarinnar Kóps Hafnarbraut 12.
Skrifað: 22. febrúar 2021
Verið er að vinna í að færa símanúmer, móttöku og aðstöðu verkstjóra, þannig að íbúar geti snúið sér til forstöðumanns með þau erindi sem íbúar þurfa aðstoð við. Áfram verður unnið í að finna varanlegt húsnæði fyrir áhaldahús á Bíldudal, en horft er til þess að þjónustumiðstöð komist í langtíma leiguhúsnæði, eða eigið húsnæði fyrir næsta vetur.
Áhaldahúsið hefur verið íbúum innan handar varðandi ýmis málefni. Þar er unnið að hálkuvörnum á þeim svæðum sem sveitarfélagið ber ábyrgð á ásamt því að sjálfsagt er að aðstoða einstaklinga eftir því sem við ráðum við í þeim efnum. Áhaldahúsið hefur á sínum snærum vatns- og fráveitumál. Ef íbúar þurfa aðstoð eða svör við spurningum varðandi þann málaflokk er best að byrja á að ræða við Hjalta sem vonandi hefur lausn í sínum fórum ef um almennar veituframkvæmdir eða viðhaldsmál að ræða.
Ýmis afgreiðsla á efnum, klippikortum fyrir sorp eða annað er afgreitt út frá áhaldahúsi á Bíldudal, því getur verið gott að snúa sér til Hjalta með ýmis mál sem vantar að leysa úr eða afgreiða og mun hann gera sitt besta til að aðstoða íbúa í þeim efnum.
Þeir sem þurfa aðstoð Hjalta geta hringt í númerið 835 3001 eða senda honum póst á ahaldahusbildo@vesturbyggd.is
Ef Hjalti er upptekin og getur ekki svarað er hægt að hringja í Geir í númerið 868 0869 eða senda honum póst á geir@vesturbyggd.is
Forstöðumaður áhaldahúss á Bíldudal
Arnþór Ingi Hlynsson ahaldahusbildo@vesturbyggd.is / 450 2362