Könnun á þróun byggðar og lífsgæða á Vestfjörðum
Könnunin er hluti alþjóðlegs verkefnis sem nefnist Arctic Hubs og beinir sjónum að eflingu sjálfbærni og seiglu samfélaga á Norðusrlóðum.
Tengil inná könnunina má finna hér.
Þessi könnun beinir sjónum að viðhorfum íbúa á sunnanverðum Vestfjörðum til þróunar byggðar og lífsgæða á svæðinu í nánustu framtíð. Íslenskir þátttakendur í verkefninu eru Háskóli Íslands og Háskólinn á Hólum.
Könnunin er nafnlaus og ekki verður unnt að rekja einstaka svör til svarenda. Úrvinnsla könnunarinnar er gerð í samræmi við lög um persónuvernd og meðferð persónuuplýsinga (lög nr. 90/2018).
Könnunin samanstendur af 3 spurningum, sem skiptast í nokkra liði. Í fyrstu tveimur ertu beðin/n, ef unnt er, að merkja ákveðna staði eða svæði á kort. Það tekur að jafnaði um 10-15 mínútur að svara könnuninni.