Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir næstum 4 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Tillaga að eldis­svæðum vegna fisk­eldis í Arnar­firði

Hafrann­sókna­stofnun hefur sent Skipu­lags­stofnun til kynn­ingar í samræmi við 4. gr. a í lögum um fisk­eldi, tillögu sína að afmörkun eldis­svæða fyrir fisk­eldi í Arnar­firði. Þetta er fyrsta tillaga að eldis­svæðum sem unnin er á grund­velli þessa laga­ákvæðis. Ákvörðun Hafrann­sókna­stofn­unar um eldis­svæði er forsenda þess að sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra geti úthlutað svæðum til fisk­eldis í sjó.


Skrifað: 7. júlí 2020

Auglýsingar

Með breytingum á lögum um fiskeldi sem tóku gildi árið 2019 er kveðið á um að Hafrannsóknastofnun ákveði eldissvæði í sjó á grundvelli burðarþols og bestu heildarnýtingar mögulegra eldissvæða. Jafnframt skal taka tillit til strandsvæðisskipulags við ákvörðun um eldissvæði, ef það liggur fyrir.

Ef ekki liggur fyrir strandsvæðisskipulag á því svæði sem um ræðir, skal Skipulagsstofnun kynna tillögu Hafrannsóknastofnunar að eldissvæðum og gefa þeim sem kjósa kost á að skila inn athugasemdum við tillöguna, áður en Skipulagsstofnun veitir umsögn til Hafrannsóknastofnunar um hana. Ekki liggur fyrir strandsvæðisskipulag í Arnarfirði, en unnið er að slíku skipulagi fyrir Vestfirði.

Við kynningu tillögunnar gefst stjórnvöldum aðliggjandi sveitarfélaga og þeim sem búa yfir þekkingu á náttúrufari og nýtingu á svæðinu tækifæri til að koma á framfæri upplýsingum um aðstæður og starfsemi á svæðinu sem mikilvægt er að hafa í huga, áður en ákvörðun er tekin um afmörkun eldissvæða.

Allir geta kynnt sér tillögu Hafrannsóknastofnunar að eldissvæðum í Arnarfirði og lagt fram athugasemdir. Þær skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 7. ágúst 2020 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á hafskipulag@skipulag.is. Skipulagsstofnun gefur í kjölfarið umsögn til Hafrannsóknastofnunar, þar sem gerð er grein fyrir þeim athugasemdum sem borist hafa.

Tillaga Hafrannsóknastofnunar að eldissvæðum í Arnarfirði

Tillaga Hafrannsóknastofnunar að eldissvæðum í Arnarfirði –mynd