Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir næstum 5 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Tillaga að frið­lýs­ingu Látra­bjargs

Umhverf­is­stofnun hefur lagt fram tillögu að frið­lýs­ingu fyrir frið­land að Látra­bjargi, stærsta fugla­bjargi Evrópu og nágrenni þess. Í rökstuðn­ingi fyrir frið­lýs­inguna segir að líffræðileg fjöl­breytni svæð­isins sé mikil og þar megi finna marg­breyti­legt fuglalíf sem hafi alþjóð­legt mikil­vægi.


Skrifað: 23. apríl 2019

Fréttir

Í fyrstu náttúruverndaráætlun Alþingis (2004–2008) var samþykkt ályktun um að Látrabjarg og nágrenni yrði friðlýst sem búsvæði fugla. Frá árinu 2011 hefur Umhverfisstofnun unnið að undirbúningi friðlýsingar með samtali við landeigendur, sveitarfélag og fleiri.

Samkvæmt 39. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd annast Umhverfisstofnun undirbúning friðlýsingar. Skv. 2. mgr. fyrrnefndrar greinar skal Umhverfisstofnun gera drög að friðlýsingarskilmálum og leggja fyrir landeigendur og aðra rétthafa lands, viðkomandi sveitarfélög og aðra sem hagsmuna eiga að gæta. Frestur til að gera athugasemdir við fyrirhugaða friðlýsingu skal vera þrír mánuðir og skal stofnunin í kjölfarið vísa málinu til ráðherra með tillögum að friðlýsingarskilmálum og gera grein fyrir því hvort að náðst hafi samkomulag um friðlýsinguna við hlutaðeigandi aðila.

Sú tillaga að friðlýsingarskilmálum sem Umhverfisstofnun leggur hér fram byggir á því samtali sem hefur átt sér stað á vettvangi samstarfshóps og þeim athugasemdum sem bárust frá fulltrúum landeigenda við áður framlagða tillögu Umhverfisstofnunar að friðlýsingarskilmálum fyrir svæðið.

Athugasemdir

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til og með 18. júlí 2019. Athugasemdum má skila á heimasíðu Umhverfisstofnunar, með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða senda með pósti til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.

Nánari upplýsingar má finna á heimsaíðu Umhverfisstofnunar www.ust.is