Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir u.þ.b. 3 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Tillaga að frið­lýs­ingu þjóð­garðs á Vest­fjörðum

Umhverf­is­stofnun, í samstarfi við samstarfshóp sem vinnur að undir­bún­ingi frið­lýs­ingar, leggur hér með fram tillögu að stofnun þjóð­garðs á sunn­an­verðum Vest­fjörðum, skv. 47. gr. nátt­úru­vernd­ar­laga nr. 60/2013. Svæðið nær m.a. til Dynj­anda, Geir­þjófs­fjarðar, Vatns­fjarðar og Hrafns­eyrar.


Skrifað: 26. febrúar 2021

Fréttir

Samkvæmt 39. gr. sömu laga annast Umhverfisstofnun undirbúning friðlýsingar. Skv. 2. mgr. fyrrnefndrar greinar skal Umhverfisstofnun gera drög að friðlýsingarskilmálum og leggja fyrir landeigendur og aðra rétthafa lands, viðkomandi sveitarfélög og aðra sem hagsmuna eiga að gæta. Frestur til að gera athugasemdir við fyrirhugaða friðlýsingu skal vera þrír mánuðir og skal stofnunin í kjölfarið vísa málinu til ráðherra með tillögum að friðlýsingarskilmálum og gera grein fyrir því hvort að náðst hafi samkomulag um friðlýsinguna við hlutaðeigandi aðila. Sú tillaga að friðlýsingarskilmálum sem Umhverfisstofnun kynnir nú byggir á því samtali sem hefur átt sér stað á vettvangi samstarfshóps.

Meginmarkmið friðlýsingarinnar er að vernda og varðveita einstakt svæði fyrir komandi kynslóðir. Með friðlýsingunni verður til heilstætt svæði sem hefur að geyma ómetanlegar náttúru- og menningarminjar og sögu.

Dynjandi var friðlýstur sem náttúruvætti árið 1981. Hann er meðal hæstu fossa landsins, nær 100 metra hár og af mörgum talinn ein fegursta náttúruperla Íslands.
Vatnsfjörður var friðlýstur árið 1975 sem friðland og þar má finna mikla gróðursæld, fjölbreytt dýralíf, jarðhita ásamt menningarminjum.
Surtarbrandsgil var friðlýst sem náttúruvætti 1975 til að vernda einstakar steingerðar leifar gróðurs sem klæddu landið á teríer-tímabilinu.
Geirþjófsfjörður er eyðifjörður á náttúruminjaskrá, þar ríkir mikil gróðursæld og kyrrð. Fjörðurinn er sögusvið Gíslasögu Súrssonar og þar má finna tóftir og rústir tengdri sögunni.
Á Hrafnseyri í Arnafirði fæddist og ólst upp Jón Sigurðsson, frelsishetja íslensku þjóðarinnar. Til að minnast hans var fæðingardagur hans 17. júní valin sem þjóðhátíðardagur Íslendinga. Á Hrafnseyri er fræðslusetur tileinkað ævi og minningu hans.

Tillaga að friðlýsingarskilmálum  
Kort af svæðinu
Hnitaskrá   

Kynning á tillögu að friðlýsingu  

Umhverfisstofnun leggur hér með fram tillögu að friðlýsingaskilmálum fyrir þjóðgarð á sunnanverðum Vestfjörðum ásamt tillögu að mörkum svæðisins. Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til og með 26. maí 2021. Athugasemdum má skila hér að neðan, með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða senda með pósti til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík. Umhverfisstofnun vekur athygli á því að innsendar athugasemdir eru hluti af stjórnsýslumáli og kunna að verða afhentar þriðja aðila sé óskað eftir í samræmi við upplýsingalög nr. 140/2012.

Frekari upplýsingar veita Freyja Pétursdóttir (freyjap@ust.is) og Edda Kristín Eiríksdóttir (eddak@ust.is) með tölvupósti eða í síma 591-2000.