Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir u.þ.b. 5 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Tillaga að nýju skipu­riti Vest­ur­byggðar

Tekin var fyrir á fundi 863. bæjar­ráðs Vest­ur­byggðar í morgun tillaga að nýju skipu­riti sveit­ar­fé­lagsins. Gert er ráð fyrir að skipu­ritið taki gildi 1. maí 2019.


Skrifað: 12. febrúar 2019

Fréttir

Lagt er til að þrjú svið verði stofnuð

  • Fjármála- og stjórnsýslusvið
  • Fjölskyldusvið
  • Umhverfis- og framkvæmdasvið

Sviðin taka við verkefnum sem fallið hafa undir skrifstofu- og fjármálastjóra, félagsmálastjóra og tæknideild Vesturbyggðar.

Minnisblað sem bæjarstjóri lagði fram á fundinum má sjá hér að neðan þar sem farið er nánar í breytingarnar.