Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 2 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Starfs­leyfi Arctic Sea Farm í Arnar­firði

Umhverf­is­stofnun hefur unnið tillögu að starfs­leyfi fyrir sjókvía­eldi Arctic Sea Farm hf. í Arnar­firði. Um er að ræða sjókvía­eldi með allt að 4.000 tonna hámarks­líf­massa á hverjum tíma.


Skrifað: 13. október 2021

Auglýsingar

Framkvæmdin fór í mat á umhverfisáhrifum og birti Skipulagsstofnun álit vegna þessa þann 13. júlí 2020. Framkvæmdin rúmast bæði innan burðarþolsmats og áhættumats Hafrannsóknarstofnunar fyrir Arnarfjörð. Í áliti Skipulagsstofnunar kemur fram að eldið muni hafa áhrif vegna aukinnar uppsöfnunar næringarefna undir og nálægt kvíum og verði talsvert neikvæð. Áhrifin muni ráðast af aðstæðum á hverjum stað og vera að að mestu afturkræf með nægjanlegri hvíld svæða og ef eldi verði hætt.
Í því ljósi telur Skipulagsstofnun mikilvægt að svæði séu hvíld nægjanlega og tilhögun eldisins stjórnist að raunástandi á eldissvæðum. Umhverfisstofnun veitti umsagnir í matsferli framkvæmdarinnar.

Að mati Umhverfisstofnunar geta áhrif uppsöfnunar næringarefna verið talsvert neikvæð á eldissvæðum en afturkræf og munu því ekki hafa varanleg áhrif á ástand sjávar og botndýralíf. Eldið er kynslóðaskipt og svæði hvíld á milli kynslóða þannig að botninn jafni sig á milli. Umhverfisstofnun bendir á að í tillögu að starfsleyfi stofnunarinnar fyrir starfseminni eru ákvæði þess efnis að stofnunin geti einhliða frestað útsetningu seiða, bendi niðurstöður vöktunar til þess að umhverfisaðstæður séu óhagstæðar á eldissvæði og það þarfnist frekari hvíldar. Gerð er krafa um vöktun svæða í starfsleyfi sem útfærð eru í vöktunaráætlun rekstaraðila.

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is) merkt UST202003-450. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 9. nóvember 2021. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.